Flökkulína

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

'Eg á líka ammæli.. ligga ligga lái

23. Febrúar ‘eg á afmæli í dag

Sólin skín og fallegur dagur. Byrjaði daginn a BBD. Morgunkaffi með stelpunum í bakgarðinum hjá Rebecu. Siðbúinn hádegisverður að brasilískum hætti og góð tónlist.
Annars talaði ég við þá á skrifstofunni i dag og haldið ekki að mín sé bara í áframhaldandi fríi. En ég verð hérna til 10. mars. En þá fer ég á skip sem siglir út frá Ft. Lauridale. En ég verð ekki þar lengi, heldur hálfum mánuði síðar þá flýg ég til San Diego á vesturströndinni og verð á þvi skipi til enda samningsins. Það skip siglir niður til Alcapuco i Mexico, fer gengum allann Panamaskurðinn og eitthvað meira,, man það ekki alveg í augnablikinu. En sigli svo aftur til Evrópu í Apríl. Vá er það nú flakkið á manni.
En jæja svo núna er ég að leita mér að vinnu á meðan ég er hérna í fríinu. ‘Eg er viss um að ég detti niður á eitthvað. Enda er mikið að gerast hérna í Daytona. Há túrista tímabilið.

Um kvöldið fékk ég sannkallaðann ‘Islenskann og rosalega góðann kvöldverð. Já Kristin og Tony voru með svaka fína veislu handa mér í tilefni dagsins. Lamb, brúnaðar kartöflur, rauðkál og allt tilheyrandi, jú og svo rosa afmælisterta á eftir.. Þúsund þakkir fyrir mig.
Eftir matinn hitti ég svo félagana á The Ocean Deck og þar var drukkið afmælisbjór og tjúttað. Við Mike fórum á kostum á dansgólfinu, þar sem fólk hélt að við værum að dansa nýjann dans og jú tók tilburði okkar upp og dönsuðu. En í raun var ég að reyna að koma Mike aftur í axlaliðinn eftir að hann hrökk úr honum. Það var tilkynnt eftir á að allir hafi sinn rétt á þvi að tjá sig á sinn hátt... og var því bent til okkar.. þar sem fólk virkilega hélt að við værum að dansa. Allavega þá var þetta alveg drep fyndið.
En ég átti yndislegann afmælisdag. Takk fyrir afmæliskveðjurnar krúttin mín.

Daglegt brauð

Vaknaði bara snemma í morgun og keyrði Rebecu í vinnuna, en svo er ég bara búin að vera við heimilsstörfin. Vaska upp og ryskuga, fór út í þvottahús og viðraði hundinn. En í dag er presidents day svo það er hálfgerður sunnudagur,, nema hjá þessum vinum mínum sem vinna ekki hjá opinberum aðilum svo það eru flestir í vinnu. En það er gott líka að vera einn með sjálfum sér og njóta þess bara. En ég ætla að kíkja á Kristínu frænku á eftir.
‘Eg er reyndar símalaus og internet laus, hérna eru fáir með heimasíma svo ég fer út í 7-11 í tíkallasimann.. það er eins og maður sér hreinlega dottinn aftur í tímann.
Annars er bara fínasta veður, ekki of hlítt en samt stuttbuxnaveðu... he he gott að vera laus við slagveðrið og kuldann heima.


22. Febrúar

‘eg vakaði þokkalega snemma í dag, svona miðað við að vera í fríi og allt það. ‘Eg talaði við þá á skrifstofunni og það lítur út fyrir að ég fari á sjóinn komandi sunnudag. En það er ekkert pottþétt enþá, á morgun á allt að koma í ljós. En í dag fórum við Rebeca í útréttingar, Bankann og búðina. ‘Eg keypti mér afmælisgjöf og það var ferðatakska og litlir hátalar fyrir ferðatölvuna. Já svo ég er alsæl með það.

Eftir inkaupinn fyrir heimilið og jú mig að þá hrigdi Mike i mig og við fórum út að sigla. Fórum á litila nýja bátum þeirra Olle. Við sigldum á Halifax ánni og horfðum á sólsetrð. Voðalega aflsappandi og huggó. Svo dreif ég hann með mér til Kristinu frænku og Tony´s. Það var tekið vel á móti okkur þar eins og alltaf.
Mike keyrði mig svo heim en þá fattaði ég það að ég var lykla laus og í þvi hringir Jeff vinur minn og við fórum bara á rúntnn, fengum okkur miðnæturs afmælistertu á Denny´s. Annars hefur þetta bara verið ljómandi fínn dagur. En á morgun á ég afmæli ligga ligga lái.

laugardagur, febrúar 19, 2005

Landkrabba Líf

19. febrúar Landkrabbalíf
jæja þá veit ég ekkert hvað gerist næst. ‘Eg er opinberlega komin í frí og ég er núna stödd í Daytona. Það var tekið vel á móti mér eins og venjulega. En í gær fékk ég óvænt far frá Orlando til Daytona með Gregory og vini hans, og við skelltum okkur á the Ocean Deck. ‘Eg kom Rebecu algjörlega á óvart en hún vinnur þar og vissi ekkert um það að ég væri á leiðinni. En ég tróð mér inn á hana og gisti hjá henni á meðan ég er hérna. En svo í dag fórum við og borðuðum á Maria Bonitas, svo fórum við bara á rúntinn en ég fékk að keyra enda hef ég ekki keyrt bíl í marga marga mánuði. En svo buðu Olle og Marie Anne mér í mat í kvöld. Mike kom einnig og við áttum góða stund saman. En það er allveg ótrúlegt hvað það er gott að koma aftur... Það er eins og ég hafi aldrei farið.
En það er fyndið hvað maður metur einfalda hluti mun betur þegar maður hefur ekki haft þá. Bara það að geta farið á rúntinn eða pantað pizzu eða hringt þegar manni langar... en þetta eru einfaldir hlutir sem eru ekki í boði þegar maður er um borð í skipi. En allavega þá veit ég ekki nákvæmlega hvað ég verð lengi hérna,, en allavega fram á þriðjudag.. en þá kemur kanski eitthvað í ljós um hvaða skip ég fer á og hvenær ég fer og hvert ég fer. En þangað til ætla ég bara að njóta þess að vera í fríi og hitta gamla vini..... kanski verð ég hérna nógu lengi að ég fái tækifæri á að hitta Söru og fjöskyldu en þau koma til Orlando þann 25 feb. En jæja ég ætla ekki að vera allt of mikil dóni hérna að hanga á internetinu í allt kvöld. En þangað til næst
Ástarkveðjur
Ykkar gingerin

Salat og kaldur Kalik á Bahamas eyjum

Salat og kaldur Kalik á Bahamaeyjum

Flugið frá Orlando til Bahamas tók rétt um 1 og hálfann tíma, rjómablíða og gott útsýni yfr eyjarnar. Þegar loks var komist í gengum útlendingareftilitið fór ég í göngutúr. Það var reyndar ekki margt að sjá þvi yfirleitt er lítið um að vera í kringum flugvelli. En ég rakst á nokkrar hressar kerlingar sem voru að selja mat af grillinu. ‘Eg tillti mér hjá þeim, keypti mér salat og einn kaldann Kalik. En það er Bahamiskur bjór svipaður Corona. En ekki nærri eins góður. ‘Eg sat með kellunum í rúma 2 tíma. Fylgdist með fólkinu koma og fara.. næra sig á BBQ kjúlla eða jerked beef bitum. En svo er ég vera búin að vera hérna á flugvellinum. Svo satt að segja þá er ég búin að eiða meira en heilum dag á flugvöllum eða í flugvélum.
Klukkutími í brottför og ekki neinn mögleiki á sígo.
En það er ekki oft sem maður skreppur í dagsferð til Bahamas.... : )

Miss Green-Gray

18. febrúar Miss Green-gray

ég vaknaði snemma í morgun við að síminn hringdi. Skrifstofan í Miami með upplýsingar um bókunnarnúmer og flug. ‘I snatri pakkað ég öllu og hringdi svo í Amöndu og hún kom og keyrði mig út á flugvöll. Þegar ég var að bóka mig inn kallaði daman hinu megin við afgreiðsluborðið,, yes so Miss Green-Gray how can I help you today? Ég hef verið kölluð hinum ýmsu nöfnum en aldrei fyrr verið kölluð fröken græn-grá. Þegar búið var að leysa úr þessum misskilningi skelltum við hressilega upp úr. En málið var að hún var að lesa passann minn og í stað þar sem nafnið er,, þá var hún að lesa augnlitinn minn og hæð... ‘Eg þakka bara pennt fyrir að vera ekki hreinlega kölluð næst fröken 164 cm.

Allt i steik og stressi........

17. febrúar.... allt í stek og stressi.

Vaknaði á slaginu 06:00 og dreif mig af stað í æfingabúðirnar. Sat 2 námskeið en svo þegar var komið að 3 og 4 tíma þá var mín bara ekkert bókuð í þá og allar dyr stóðu lokaðar. Málið var að það hafði láðst að skrá mig inn og Disney sagði bara lok lok og læs og ég verð bara að bíða þangað til næsta námskeið hefst,, sem er eftir hálfann mánuð. ‘Eg hringdi í Image ( fyrirtækið sem ég vinn fyrir ) og þeir hringdu um allt til að reyna að redda þessu en ekkert gekk.
Ekki batnaði ástandið því ef ég hef ekki lokið þessu sérhæfða Disney námskeiði þá þýðir það ekkert skip. Svo nú er fjörið rétt að byrja.
‘Eg verð að fara út úr landinu í síðasta lagi þann 19 feb. Og ég er ekkimeð neitt skip til að fara á í blikinu. Eftir miklar pælingar og hringingar þá enduðum við á því að senda mig til Bahamas og til baka til að koma landvistarleyfinu í lag.

Disney heimur 16. febrúar

16. febrúar æfintýradagur í Disney

‘Eg vaknaði snemma og dreif mig í æfingabúðirnar, var þar fram að hádegi en svo var haldið í Animal Kingdom. Yndislegt að eyða deginum þar. Algjör paradís. ‘Eg sá rosalega flott og skemmtilegt Lion King show og jú rússibanar og allt tilheyrandi.
Um kvöldið kom Mirza keyrandi frá Daytona og við fórum út að borða saman. Mikið var spjallað og rætt. En það eru að verða 6 ár frá því að við hittumst fyrst. Svo það var hellingur af minningm og málefnum sem þurfti að ræða og rifja upp. Því miður var tíminn allt of fljótur að líða og ég kom mér í bælið á skikkanlegum tíma.

Orlando 15. febrúar

15. febrúar Orlando
Jæja þá er ég búin að segja bless við hana Brilliance mína, jú með tár í augum en margar góðar miningar, reynslu og nýja vini. Það er alltaf erfitt að segja bless, en lífið heldur áfram og ný reynsla og nýtt umhverfi er gott fyrir alla. Það fer aldrei illa í mig að pakka aleigunni í ferðatöskuna og á vit nýrra æfintýra. En mér stóð nú ekki á sama í dag. En ég flaug með kaffivélinni frá Miami eftir eina nótt þar og flaug til Orlando. En töskurnar komu ekki með og jú eins og ég sagði að þegar aleigan og vinnan er í töskunum, þá stendur manni sko ekki á sama. En það var ekki margt sem ég gat gert nema bíða þolinmóð og vona að þær kæmu í ljós. En eftir að ég er búin að tilkynna töskurnar týndar fer ég niður og þar býður mín maður með skilti sem stendur á “Ginger Einarsdóttir, photographer” og jú við höldum af stað út í bíl, nema hvað að það var hvorki meira né minna en Limmo sem beið eftir mér fyrir utan. Og jú ég var keyrð upp að dyrum á þessu fína hóteli. Svo núna er ég með hálfgert víðáttubrjálæði í stóru hótelherbergi alein. Kanski er það ekkert svo stórt, en eftir að hýrast í pínu litlum klefa ásamt herbergisfélaga þá er allt stórt.
En svo kom Thatiana vinkona mín og sótti mig í kvöld og við fórum út að borða á svakalega fínann og góðann veitingarstað. Japanskur staður með úrvals sushi og við hreinlega borðuðum á okkur gat. Eftir góðann kvöldverð kíkti ég svo í heimsókn til Amöndu sem er önnur stelpa sem ég bjó með í Daytona og við áttum góða stund saman, og til að toppa frábært kvöld að þá beið aleigan eftir mér á hótelinu, svo ég sit hérna sæl og glöð með allt saman,, nema það að ég finn ekki snúruna til að tengjast internetinu,,,, en ég nenni ekki að taka upp úr töskunum núna, heldur ætla ég bara að skríða sæl og glöð upp í stóra hjónarúmið og hvíla mig vel fyrir Mikka, Andrés og félaga sem taka á móti mér á morgun. Góða nótt zzzzzzzzzzzz zzzzzzzzzz zzzzzzzzzzzz zzzzzzzz

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

timinn lidur allt of hratt!!!

Dagarnir fljuga afram og einhvernveginn lidur timinn allt of hratt. Bara 5 dagar eftir a tessu skipi og svo er eg bara farin. Mer er tokkalega illt i hjartanu minu en eg er samt spennt ad fara og troda dotinu minu i ferdatoskuna og a flakk aftur og byrja upp a nytt. En samt verd eg nu ad vidurkenna ad eg er farin ad hlakka mikid til ad koma heim... ja ta er vor i lofti og sumarid ad koma..en eg verd ad finna eitthvad ut ur tvi hvad eg aetla ad gera tegar eg kem heim,,, ju vinnu yfir sumarid... hummm ef einhver er med einhverjar hugmydir endilega lata mig vita.
Elsku Addi, til lukku med nyju vinnuna tina,, Gulli sagdi mer frettirnar fyrir svona um halfum mandudi sidan. Eg er tokkalega oft buin ad reyna ad hringja i tig en tu hefur verdid ut a lifinu og heyrir ekkert i mer tegar eg hringi.... svo mundu tad naest ad tegar tu faerd unknown caller ad ta er tad sennilega eg. En eg aetla ad reyna ad heyra i ykkur ollum nuna tegar eg fer til Florida. Eg man ekki hvort eg var buin ad segja ykkur fra tvi en eg verd einhverja daga i disney tjalfun.. svo tad verdur eitthvad spennandi ad sja.
En jaeja klukkan er ad ganga 3 um morgun og eg tarf ad vakna snemma i fyrramalid. Panama skurdurinn a morgun og mikid ad gera..
saknadarkvedjur
gingy

föstudagur, febrúar 04, 2005

Gledilegt nytt ar!!!!

Hae hae,
eg veit ekki hvort einhver les tessa sidu enta, tar sem eg hef verid svo otrulega lot vid ad skrifa.. en jaeja hvad um tad.
Nyja arid hefur gengid vel, margt skemmtilegt buid ad gerast og buid ad vera brjalad ad gera.
En lifid herna um bord hefur gengid vel, reyndar margir ut ljosmyndaralidinu er farid heim og nyjir komnir i stadinn. I sidasta tur fekk eg pinu stoduhaekkun svo tvi fylgir adeins meiri abyrgd og vinna en gerir tetta allt saman bara skemmtilegra.
En nuna eru miklar breytingar framundan,, en malid er ad eg atti ad fara a skip sem heitir Adventure of the Seas, sem er i Voyager classa, sem tydir mun staerra og meira skip. Allir vilja komast a svoleidis skip en eg var einhvernvegin ekkert yfir mig spennt, en eg hef litid um tad ad segja en sagdi samt ju audvitad fer eg tangad. En tad er meiri vinna og miklu meiri peningar.. en svo lidu bara nokkrir dagar og plonin ordin breytt aftur,,og viti menn.... minir nyju tilvonandi vinnufelagar eru Mikki, Andres, Pluto og allir hinir. Ja eg er ad fara vinna fyrir DISNEY..... tad er slegist um ad komast a Disney skip en haldid ekki ad min hafi bara verid serstaklega valin, svo nuna vona eg bara ad ekkert breytist. Ef allt fer eftir aaetlun ta fer eg i land tann 14 feb og fer til Orlando,, DISNEY WORLD i nokkra daga tjalfun og svo tadan a Disney Wonder skipid. Eg er farin ad hlakka til..
En madu faer nu ekki allt sem madur vill,,en nu skilja leidir okkar Jose's og mer er svo illt i hjartanu minu yfir tvi, en reyndar er hann ad fara heim i fri sama dag og eg fer af Brilliance svo hvorugt okkar verdur herna naestu 3 manudina.
En svona er lifid.
En hvad er ad fretta af ykkur ollum? Eg heyri ekki neitt af neinum, endilega sendid mer nu kvedju i gestabokinni eda linu i tolvuposti.
bid nu ad heilsa i bili,
ykkar Ingigerdur

& 5b4 lt;!-- End main column -->