Flökkulína

laugardagur, febrúar 19, 2005

Salat og kaldur Kalik á Bahamas eyjum

Salat og kaldur Kalik á Bahamaeyjum

Flugið frá Orlando til Bahamas tók rétt um 1 og hálfann tíma, rjómablíða og gott útsýni yfr eyjarnar. Þegar loks var komist í gengum útlendingareftilitið fór ég í göngutúr. Það var reyndar ekki margt að sjá þvi yfirleitt er lítið um að vera í kringum flugvelli. En ég rakst á nokkrar hressar kerlingar sem voru að selja mat af grillinu. ‘Eg tillti mér hjá þeim, keypti mér salat og einn kaldann Kalik. En það er Bahamiskur bjór svipaður Corona. En ekki nærri eins góður. ‘Eg sat með kellunum í rúma 2 tíma. Fylgdist með fólkinu koma og fara.. næra sig á BBQ kjúlla eða jerked beef bitum. En svo er ég vera búin að vera hérna á flugvellinum. Svo satt að segja þá er ég búin að eiða meira en heilum dag á flugvöllum eða í flugvélum.
Klukkutími í brottför og ekki neinn mögleiki á sígo.
En það er ekki oft sem maður skreppur í dagsferð til Bahamas.... : )

& 5b4 lt;!-- End main column -->