Disney heimur 16. febrúar
16. febrúar æfintýradagur í Disney
‘Eg vaknaði snemma og dreif mig í æfingabúðirnar, var þar fram að hádegi en svo var haldið í Animal Kingdom. Yndislegt að eyða deginum þar. Algjör paradís. ‘Eg sá rosalega flott og skemmtilegt Lion King show og jú rússibanar og allt tilheyrandi.
Um kvöldið kom Mirza keyrandi frá Daytona og við fórum út að borða saman. Mikið var spjallað og rætt. En það eru að verða 6 ár frá því að við hittumst fyrst. Svo það var hellingur af minningm og málefnum sem þurfti að ræða og rifja upp. Því miður var tíminn allt of fljótur að líða og ég kom mér í bælið á skikkanlegum tíma.

<< Home