Flökkulína

laugardagur, febrúar 19, 2005

Orlando 15. febrúar

15. febrúar Orlando
Jæja þá er ég búin að segja bless við hana Brilliance mína, jú með tár í augum en margar góðar miningar, reynslu og nýja vini. Það er alltaf erfitt að segja bless, en lífið heldur áfram og ný reynsla og nýtt umhverfi er gott fyrir alla. Það fer aldrei illa í mig að pakka aleigunni í ferðatöskuna og á vit nýrra æfintýra. En mér stóð nú ekki á sama í dag. En ég flaug með kaffivélinni frá Miami eftir eina nótt þar og flaug til Orlando. En töskurnar komu ekki með og jú eins og ég sagði að þegar aleigan og vinnan er í töskunum, þá stendur manni sko ekki á sama. En það var ekki margt sem ég gat gert nema bíða þolinmóð og vona að þær kæmu í ljós. En eftir að ég er búin að tilkynna töskurnar týndar fer ég niður og þar býður mín maður með skilti sem stendur á “Ginger Einarsdóttir, photographer” og jú við höldum af stað út í bíl, nema hvað að það var hvorki meira né minna en Limmo sem beið eftir mér fyrir utan. Og jú ég var keyrð upp að dyrum á þessu fína hóteli. Svo núna er ég með hálfgert víðáttubrjálæði í stóru hótelherbergi alein. Kanski er það ekkert svo stórt, en eftir að hýrast í pínu litlum klefa ásamt herbergisfélaga þá er allt stórt.
En svo kom Thatiana vinkona mín og sótti mig í kvöld og við fórum út að borða á svakalega fínann og góðann veitingarstað. Japanskur staður með úrvals sushi og við hreinlega borðuðum á okkur gat. Eftir góðann kvöldverð kíkti ég svo í heimsókn til Amöndu sem er önnur stelpa sem ég bjó með í Daytona og við áttum góða stund saman, og til að toppa frábært kvöld að þá beið aleigan eftir mér á hótelinu, svo ég sit hérna sæl og glöð með allt saman,, nema það að ég finn ekki snúruna til að tengjast internetinu,,,, en ég nenni ekki að taka upp úr töskunum núna, heldur ætla ég bara að skríða sæl og glöð upp í stóra hjónarúmið og hvíla mig vel fyrir Mikka, Andrés og félaga sem taka á móti mér á morgun. Góða nótt zzzzzzzzzzzz zzzzzzzzzz zzzzzzzzzzzz zzzzzzzz

& 5b4 lt;!-- End main column -->