Jæja þá er það fyrsta blogið.. ég er bara rétt að reyna að finna út úr þessu öllu hvernig þetta virkar.
En málið er að ég ákvað að setja svona blog upp er sú að ég er á leið í nýja vinnu, en ég verð sennilega mjög lítið í reglulegu símasambandi eða öðru bandi nema í gegnum internetið. Mig langar að leyfa ykkur að fá að fylgjast með mér og mínum framandi ferðalögum. Reyndar verður þetta algjör þrælavinna líka, en mig hlakkar bara til að takast á við það.
En í dag fékk ég loksins póstinn sem ég er búin að býða eftir, ákveðnir pappirar og svona, en svo mér til mikillar ánægju þá stendur lika í þeim á hvaða skipi ég verð að vinna á. En það heitir Majesty of the Seas og siglir úr höfn á Miami og fer til Bahamas eyja, Key West og svo til baka til Miami. Þetta eru 3ja og 4ra daga siglingar. Sem þíðir bara eitt að það verður mikil vinna framundan.
'Eg var að skoða ferðaáætlunina og ef ég skil þetta rétt þá legg ég úr höfn þann 20 september og fer mína fyrstu 4ra daga siglingu.
Það er eins gott að það er ekki mikið eftir af fellibyla tímabilinu. Rétt rúmur mánuður eftir. En ég var að kíkja á veðrið þarna niðurfrá og það er einn fellibylurinn á leiðinni, bara rétt austann við Cubu og er að taka stefnu í áttina að Florida.. en það er engin hætta á þessum stóru skipum, og þau fara ekkert út á sjó eða sigla inn í svona vitleysu.
En já allavega þá er ég orðin svakalega spennt og er farin að hlakka mikið til. 'A jafnvel von á því að það verði erfitt að sofna í nótt.
En á morgun er minn síðasti vinnudagur hérna heima. Dagvakt á svarta og svo er það tínan um kvöldið. Það eru blendar tilfinningar í gangi. Maður á eftir að sakna svo margra.