Síðasti vinnudagurinn...
Jæja þá voru það síðustu vaktirnar mínar í dag á báðum vinnustöðunum. Ekki oft að maður hættir í tveimur vinnum sama daginn. Mér leið hálf undarlega þegar ég gekk útaf tínunni, en ég er búin að vera þar nánast öll kvöld þessa árs, og jú ég fékk nú pínu sting í hjartað. Allt þetta fólk sem maður hefur kynnst á þessum stutta tíma, satt að segja að þá hef ég eignast allveg ótrúlega góða vini og átt alveg meiriháttar stundir með þeim. Þið vitið hver þið eruð.
En svo skellti ég mér í bíó í kvöld með strákunum, fínasta mynd en ég man þó ekki hvað hún heitir.

<< Home