Daglegt brauð
Vaknaði bara snemma í morgun og keyrði Rebecu í vinnuna, en svo er ég bara búin að vera við heimilsstörfin. Vaska upp og ryskuga, fór út í þvottahús og viðraði hundinn. En í dag er presidents day svo það er hálfgerður sunnudagur,, nema hjá þessum vinum mínum sem vinna ekki hjá opinberum aðilum svo það eru flestir í vinnu. En það er gott líka að vera einn með sjálfum sér og njóta þess bara. En ég ætla að kíkja á Kristínu frænku á eftir.
‘Eg er reyndar símalaus og internet laus, hérna eru fáir með heimasíma svo ég fer út í 7-11 í tíkallasimann.. það er eins og maður sér hreinlega dottinn aftur í tímann.
Annars er bara fínasta veður, ekki of hlítt en samt stuttbuxnaveðu... he he gott að vera laus við slagveðrið og kuldann heima.
22. Febrúar
‘eg vakaði þokkalega snemma í dag, svona miðað við að vera í fríi og allt það. ‘Eg talaði við þá á skrifstofunni og það lítur út fyrir að ég fari á sjóinn komandi sunnudag. En það er ekkert pottþétt enþá, á morgun á allt að koma í ljós. En í dag fórum við Rebeca í útréttingar, Bankann og búðina. ‘Eg keypti mér afmælisgjöf og það var ferðatakska og litlir hátalar fyrir ferðatölvuna. Já svo ég er alsæl með það.
Eftir inkaupinn fyrir heimilið og jú mig að þá hrigdi Mike i mig og við fórum út að sigla. Fórum á litila nýja bátum þeirra Olle. Við sigldum á Halifax ánni og horfðum á sólsetrð. Voðalega aflsappandi og huggó. Svo dreif ég hann með mér til Kristinu frænku og Tony´s. Það var tekið vel á móti okkur þar eins og alltaf.
Mike keyrði mig svo heim en þá fattaði ég það að ég var lykla laus og í þvi hringir Jeff vinur minn og við fórum bara á rúntnn, fengum okkur miðnæturs afmælistertu á Denny´s. Annars hefur þetta bara verið ljómandi fínn dagur. En á morgun á ég afmæli ligga ligga lái.

<< Home