Flökkulína

laugardagur, febrúar 19, 2005

Miss Green-Gray

18. febrúar Miss Green-gray

ég vaknaði snemma í morgun við að síminn hringdi. Skrifstofan í Miami með upplýsingar um bókunnarnúmer og flug. ‘I snatri pakkað ég öllu og hringdi svo í Amöndu og hún kom og keyrði mig út á flugvöll. Þegar ég var að bóka mig inn kallaði daman hinu megin við afgreiðsluborðið,, yes so Miss Green-Gray how can I help you today? Ég hef verið kölluð hinum ýmsu nöfnum en aldrei fyrr verið kölluð fröken græn-grá. Þegar búið var að leysa úr þessum misskilningi skelltum við hressilega upp úr. En málið var að hún var að lesa passann minn og í stað þar sem nafnið er,, þá var hún að lesa augnlitinn minn og hæð... ‘Eg þakka bara pennt fyrir að vera ekki hreinlega kölluð næst fröken 164 cm.

& 5b4 lt;!-- End main column -->