Flökkulína

laugardagur, febrúar 19, 2005

Landkrabba Líf

19. febrúar Landkrabbalíf
jæja þá veit ég ekkert hvað gerist næst. ‘Eg er opinberlega komin í frí og ég er núna stödd í Daytona. Það var tekið vel á móti mér eins og venjulega. En í gær fékk ég óvænt far frá Orlando til Daytona með Gregory og vini hans, og við skelltum okkur á the Ocean Deck. ‘Eg kom Rebecu algjörlega á óvart en hún vinnur þar og vissi ekkert um það að ég væri á leiðinni. En ég tróð mér inn á hana og gisti hjá henni á meðan ég er hérna. En svo í dag fórum við og borðuðum á Maria Bonitas, svo fórum við bara á rúntinn en ég fékk að keyra enda hef ég ekki keyrt bíl í marga marga mánuði. En svo buðu Olle og Marie Anne mér í mat í kvöld. Mike kom einnig og við áttum góða stund saman. En það er allveg ótrúlegt hvað það er gott að koma aftur... Það er eins og ég hafi aldrei farið.
En það er fyndið hvað maður metur einfalda hluti mun betur þegar maður hefur ekki haft þá. Bara það að geta farið á rúntinn eða pantað pizzu eða hringt þegar manni langar... en þetta eru einfaldir hlutir sem eru ekki í boði þegar maður er um borð í skipi. En allavega þá veit ég ekki nákvæmlega hvað ég verð lengi hérna,, en allavega fram á þriðjudag.. en þá kemur kanski eitthvað í ljós um hvaða skip ég fer á og hvenær ég fer og hvert ég fer. En þangað til ætla ég bara að njóta þess að vera í fríi og hitta gamla vini..... kanski verð ég hérna nógu lengi að ég fái tækifæri á að hitta Söru og fjöskyldu en þau koma til Orlando þann 25 feb. En jæja ég ætla ekki að vera allt of mikil dóni hérna að hanga á internetinu í allt kvöld. En þangað til næst
Ástarkveðjur
Ykkar gingerin

& 5b4 lt;!-- End main column -->