Sumar á 'Islandi
Hæ, æi maður er nú hálf slappur eitthvað að pikka svona á sumrin. En það er sem sé búið að vera nóg að gera. En ég skrapp í ferlega hressa sumarbústaðaferð með Drifanda og það var ferlega ljúft og gott. Alltaf góður maður og gott með þvi þegar saman komið er á þeim bænum.
En svo þegar heim var komið varð ég svona rosalega veik. 'Eg hef aldrei orðið svona veik á ævinni áður. 'Eg lá i rúminu með óráði í meira en viku. En jæja ég hresstist þó en orkan ekki allveg 100 % en samt sem áður dreif ég mig í tjald útilegu með vinnuskólanum. Það var rosa stuð,, meira að segja sólbrann ég i framan eftir sólina í sveitinni.
Svo kom helgin og þá var kikt á næturlíf Reykjavíkur með gömlu félögunum. Reyndar erum við ekkert i eins góðri æfingu eins og síðasta sumar en ég held líka kanski að það sé bara hið besta mál,, eitthvað búin vel með af þessum skemmtanna kvóta okkar. Kanski að aldurinn sé eitthvað farin að segja til sín.
En svo er maður bara búin að vera brumma um á traktórunm hérna í sveitinni.
En svo í dag held ég hreinlega að hafi verið besti dagur ársins hérna í höfðuðborginni... allavega það sem af er komið af árinu.. sólin skín og borgin yðar af mannlífi. 'Eg fór með Kalla frænda á rúntinn, síðan á austuvöll og hittum þar fleiri fjölskyldumeðlimi. Síðan var haldið út á 'Alftanes og við frændsystkinin Birna, Aron, Kalli, Þóra, Nökkvi og Halli bara grillveislu, fórum í pottinn og höfðum það ferlega huggulegt. Núna bíður bara uppvaskið eftir mér.

<< Home